-------------------------------------------------------------------
news
-------------------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------------------
Gallery Suðsuðvestur 5. mars - 3.apríl
-------------------------------------------------------------------
Féþúfur og lásagrös / Fowlbanks and Four-leaf Clovers

http://sudsudvestur.is/
http://www.youtube.com/user/sudsudvestur#p/a/u/0/8GlJ0wcdg98
http://www.youtube.com/watch?v=8GlJ0wcdg98&feature=BF&list=ULbJIX3I9wO9c&index=2

-------------------------------------------------------------------
Víðsjá
http://dagskra.ruv.is/ras1/4555716/2010/09/17/

Athyglisverð umræða um höfundarrét.

------------------------------------------------------------------

Leiðsla

Nordal's site specific installation at Hallgrimskirkja Cathedral has been extended to August 3rd.

Grein Ólafs Gíslasonar Leiðsla - Um samband fagurfræðilegrar og trúarlegrar reynslu í verki Ólafar Nordal má finna hér:

http://www.kirkjulistahatid.is/index.php?option=com_content&task=view&id=244&Itemid=1


-------------------------------------------------------------------
20.05.10 - 29.08.10
-------------------------------------------------------------------

Ólöf Nordal
Corpus dulcis, 1998
Chocolate

Ljósmynd: Linn Björklund

Vanitas -Kyrralíf
Listasafn Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum

Opnun 20. maí kl 17 / Opening May 20, 5pm

Latneska orðið vanitas merkir hégómi, eitthvað sem er innantómt, fánýtt eða einskisvert. Í listasögunni er vanitas notað um kyrralífsmálverk sem tjá hverfulleika jarðlífsins. Hér er heitið notað um samtímaverk sem teljast kyrralíf, þótt mörg þeirra hafi ekki verið sýnd sem slík í upphafi.

Eins og hefðbundin kyrralífsverk fjalla þau um lífsmáta okkar. Efniviður þeirra er hversdagslegur og uppsetning hlutanna einföld og yfirlætislaus. Með því að safna þessum verkum saman sérstaklega undir heitinu vanitas er ætlunin að minna  á fallvaltleika og endurnýjun sem felast í þeim. Í mörgum verkanna er sjónum beint  að óverðugum gildum samtímans en þó eru skilaboð þeirra hvorki napurleg né svartsýn. Í þeim er ekki lögð áhersla  á tilgangsleysi mannlegrar viðleitni heldur á vonina og þörfina á að fara með gát. Sýningin stendur til 29. ágúst.

Listamenn sem verk eiga á sýningunni eru Áslaug Thorlacius, Bragi Ásgeirsson, Dieter Roth, Haraldur Jónsson, Jóhannes S. Kjarval, Magnús Tómasson, Ólafur Gíslason, Ólöf Nordal, Ragnhildur Stefánsdóttir, Rósa Gísladóttir og Spessi. Sýningarstjóri er Hafþór Yngvason.

-------------------------------------------------------------------
15.05.10 - 06.06.10
-------------------------------------------------------------------


Fyrirmyndir / Models
Listasafn ASÍ / ASI Art Museum

Opnun 15. maí kl 16 / Opening May 15, 4pm.

Svo skrifar Aðalheiður L. Guðmundsdóttir í sýningarskrá:

Ólöf Nordal framkallar hugsun í verkum sínum með því að varpa ljósi á þversagnir í hugarfari þjóðar sem snerta viðtekinn skilning á menningarverðmætum. Hugsunin leyfir undrun að lifa meðal sýnishorna af ásjónum, sögnum, gripum og söfnum á tvívíðum fleti ljósmyndarinnar. Náttúruleg ónáttúra verkanna gerir hið ómögulega mögulegt og opnar leiðir að annarri sýn og annars konar hugarfari.

Verkin Vaxmyndasafn – Sonur og faðir / Dóttir og faðir / Faðir og sonur, eru samkvæmt Ólöfu innblásin af gamalli sögn um mann sem er á ferð uppi til fjalla. Hann gengur fram á lík ungs manns sem jökullinn hefur skilað eftir langa vist í ísnum. Á meðan maðurinn virðir fyrir sér fullkomlega varðveittan líkamann, rennur það upp fyrir honum að þetta muni vera faðir hans sem týndist á fjöllum þegar hann sjálfur var enn í móðurkviði. Þarna hittast feðgarnir fyrsta sinni – sonurinn fast að sjötugu, faðirinn liðlega tvítugur. Í verkum Ólafar skapar endurheimtin, sem ögrar lögmálum náttúrunnar, truflandi nálægð náins. Mæla má líkindi andlitsdrátta feðga og feðgina, en ókennilegur samruni ásjóna lífs og liðins, setur spurn við hvor fari eða komi á undan, frummyndin eða eftirmyndin?

Einstakir lifandi menn eru steyptir í vax en fáséðir fuglar eru drepnir og stoppaðir upp til að skapa menningar- og náttúrusöguleg verðmæti. Verkið Íslenskt dýrasafn – Geirfugl, samanstendur af tveimur ljósmyndum úr geymslu Náttúrugripasafns Íslands; önnur er af geirfuglinum sem var keyptur af þjóðinni á erlendri grund á sama tíma og handritin komu heim en hin er af listilega skálduðum staðgengli hans sem ger%C